07júlí

Hróaskelda ---------- og heimkoma !


 
  Langt síðan seinast en jæja allir hlutir gerast einhverntímann..   Kominn frá hróaskeldu og verð að segja miðað við mitt fyrsta skipti þar þá held ég að það verði ekki seinasta.

  Við erum að tala um Strokes, Franz Ferdinand, Streets, Roger Waters og fl.  Ekki voru plötusnúðarnir að verri kantinum heldur og stóðu fyrir þéttri stemningu.  Gæti talið upp áfram......   

Verð að segja það að koma til Íslands aftur er heldur fokked..  Köben come and get me... Hlæjandi  


  
                         PZ night í garðinum á HrEsSó á morgun og er með 4 miða... yes.. yes... 

07. júlí 2006 klukkan 18:50
Runólfur Óttar Kristjánsson
2 athugasemdir
21maí

Áhugavert gćrkveld...


 Já skellti mér í menningarreisu með starfsmönnum járnblendisins og var gert ýmislegt og fékk ég alveg bestu humarsúpu sem ég hef bara smakkað.. !  Úff.. mér langaði bara í ábót af henni en lét það nú vera þar sem nautakjöt fylgdi eftir þessu og meira segja góð ábót af nautakjötinu og síðan eftirréttur.  Allt þetta kostaði mig alls 1400 kr. alls ekki slæmt það!   En eftir matinn var haldið á players á ball með Brimkló og má deila um hversu skemtilegir þeir eru en það var splæst á mig inn þar sem ég ætlaði mér nú ekki að fara borga inn á þá. 
 Kvöldið varð síðan áhugaverðara eftir því sem á leið og fékk ég meðal annars að heyra það að ég væri hóra.  Seinast þegar ég vissi þá er ég ekki að selja mig karlmönnum eða kvennmönnum.  En þetta var jú þessi yndislega nýja stelpa á vaktinni.  Hún var bara ekkert par-ánægð að égf skildi ekki fallast á hennar skoðanir og ég skildi ekki lepja upp þetta drullu-daður í manneskjuni.  Þá fékk ég nú aldeilis að heyra það.  Þetta var nú ljóta ruglið !  Þessi kvennmaður er --> Bad News.

peace out....
21. maí 2006 klukkan 00:32
Runólfur Óttar Kristjánsson
7 athugasemdir
19maí

Áform dagsins !

Áform dagsins og kveldsins eru:


 1. Litbolti + bjór

 2. Sund + bjór

 3. Matur á Hótel sögu + bjór

4. Pöbbs + mikið áfengi.


En já gærkveldið var bara fínasta chill með ágætu fólki þessum wannabe plötuðsnúðum Jóni og Ingva t.d. og síðan voru Edit og Ragga alveg kreizí við viðtækið.  Við horfðum nú öll reyndar á viðtækið og voru þetta með alveg eindæmi leiðinleg lög sem komu þarna fram í Evróvisjón.  En best að skella sér í sturtu og fara tjekka á strætóleiðum.


l8ter.





19. maí 2006 klukkan 16:35
Runólfur Óttar Kristjánsson
Engin athugasemd
18maí

Heilagt stríđ og Von dalar.


 Jámm....  Ég hef ákveðið að fara í heilagt stríð gegn nammi,snakki og annari óhollustu líkt og skyndbitafæði.  Þetta ágæta stríð mitt skal byrja á mánudaginn og vona að maður geti nú haldið þetta út og skroppið í þrek og einhver svona skemtilegheit. 

 Ég er ekki neitt sérstaklega sáttur þessa dagana þar sem ákveðnir aðilar voru búnir að vera pumpa mann upp fyrir einhverri sólalandarferð og ég leit nú alltaf raunsætt á hlutina og sagði að það væri nú ekki möguleiki ef maður ætlaði að eiga einhvern pening eftir sumarið.  En jú ég hlaut að gefa mig....  Nú er ég alveg að verða hnetur "Nuts" á því að nú er verið að segja það sama og ég var alltaf að segja sem sagt líta raunsætt á hlutina.  Ég vill fara til Mallorca í sumar og ég ætla að reyna láta það takast með að rína í vaktaplanið mitt og skoða þetta nánar.

 Annars verður þetta líklegast ágætlega skipulagt sumar ef allt gengur að óskum þ.e.a.s. Veiðiferðir, sólarlönd, vinna og m.fl.  Ég hef samt miklar áhyggjur að þessu ágæta komandi sumri, ég hef ekki fundið fyrir neinni svona sérstakri löngun til að fara veiða og það er mjög óvenjulegt!  Vanalega á þessum tíma er ég búinn að fara veiða allavega 2var en er ekki búinn að fara neitt og hef ekkert spáð sérstaklega í því nema smá.  En það gæti verið loksins þegar ég dröslast á stað með alle græjurnar og út í  á eða vatn að þá komi kikkið og once u pop can´t stop.

 En núna er ég farinn að lesa moggan ágæta þar sem bölvaða fréttablaðið kom ekki í morgun ! 

l8ter people...
18. maí 2006 klukkan 18:34
Runólfur Óttar Kristjánsson
3 athugasemdir
15maí

Keep on moving....


 Já kæru hálsar....

 Þetta blogg dæmi hefur farið frekar niður á við undafarið en góðir hlutir gerast hægt eins og einhver segir.  Vinnan byrjuð og maður er byrjaður að detta inn í vakta-svefn-rólið.  Viti menn þegar ég mætti á mína fyrstu vakt  þá er mér tjáð að það sé dama byrjuð á vaktinni.  Þessi umtalaða dama felur misvel í kramið hjá testósteróninu á vaktinni því hún hefur lag á að pirra suma aðeins.  Annað sem ég tók eftir að hún er nú ekki svo vitlaus ! Neimm...
  Þannig er mál með vexti að ég man seinasta sumar þá voru testósterónin sem eru með mér á vakt ekki til í að fá stelpu inn á vaktina eða örfáir sem vildu það.  Ástæðan var sú að hún gæti ekki unnið störfin sem þyrfti að gera og myndi því fá óþarflega mikla hjálp og athygli frá testóinu á vaktinni.
 
  Já....  ég styð nú alveg jafnrétti og alles og virðist þetta ganga vel í álverinu en þetta er aðeins öðruvísi djobb veit ekki hvort það sé erfiðra ? en allavega nógu erfitt fyrir dömur sem búa ekki yfir sama líkamlega styrk og testósterónið.  En já víkjum okkur að merg málsins, daman er ekki svo vitlaus.... neimm hún hefur einstakt lag í að snúa testósterónum á vaktinni til að aðstoða sig við ýmsa hluti.  Það er máski í góðu lagi að aðstoða en að vinna fyrir hana ?

 Hmm... til hvers ertu að sækja um starf í svona verksmiðju ef það á að gera hlutina fyrir þig ?  Ég fór nú og tjekkaði á þessari dömu nánar og fylgdist með henni í akjsóni og viti menn, hún beitti bara óldskúl daðurtaktík.  Þessi taktík virkar svona helvíti fínt hjá henni að meira segja lét hún annan fyrirliðan á vaktinni (vekstjóri) fara eftir dömubindi fyrir sig.   Hún gat ekki gengið í málið sjálf og talað við eldhús & þrifa konurnar heldur sendi hún bara fyriliðan í þetta.  Ef þið mynduð hitta þennan mann og vera búinn að vinna með honum þá mynduð þið líklegast ekki halda að hann væri til-kippilegur í svona mál.

En já vaktirnar eru búnar að vera helv. fljótar að líða og er ég sáttur með það og mér sýnist að ég þurfi að fara kynna mér nánar hvað þetta blogg bíður upp á.  Það er allskonar stöff hérna sem ég veit ekkert hvað er?  Ég dáist líka af orðinu sem er notað yfir línka (Tengla) en það mun vera "Kubbar".  Aldrei hef ég heyrt neinn nota þetta orð yfir þetta en þetta er kúl. 

Besta atriði vikunar: Liverpool varð enskur bikameistari !

Ósætti vikurnar: Það er tvímælalaust það að ég þurfti að fara með kisu og láta svæfa hana. 

En ég nenni ekki að lofa að verða betri bloggari....  quote -->  " Góðir Hlutir Gerast Hægt"

peace......

Mr.B
15. maí 2006 klukkan 03:10
Runólfur Óttar Kristjánsson
4 athugasemdir
09maí

Sumriđ takes Over.

 Jámm nú er maður búinn í prófum og svona og ekki skemmir fyrir að veðrið er alveg klikkað.  En annars þá á ég von á hjeimsókn í kveld frá hjónakornunum á mánagötunni.  Pælinginn með kveldið er sú að poppa bjór og spila Fifa '06 ! Ekki slæmt kveld það.  en ég meika ekki að vera sóa of miklum tíma í að vera færa færslu inn núna þar sem það er béskoti gott veður og ég er bara að spá í opna einn öl núna bara og opna út á svalir og hafa það fkn. næs.


Farið út að leika í góða veðrinu !

l8ter...

09. maí 2006 klukkan 00:41
Runólfur Óttar Kristjánsson
3 athugasemdir
05maí

Bara hitt og ţetta...


 Enn og aftur sit ég uppí Odda og lesa undir próf eða svona allavega að reyna það...   Langar ekkert sérstaklega að segja frá þessum áfanga þar sem hann er frekar leiðinlegur.  Ég var að læra fyrr í kveld og var bara ekki að meika þetta sjitt þannig ég ákvað að skella mér í bíó á myndina Inside Man.  Satt að segja var smá lónlí að fara einn í bíó en.. það gleymdist þegar leíð á myndina og þessi mynd var líka svona hörkugóð.  Clive Owen er náttúrlega alveg brillíant leikari og líklegast skemmir það ekki fyrir kvennkyninu að hann sé nokkuð myndarlegur maður sá.  Nenni nú ekki að fara fjalla um myndina heldur bara mæli með að þið skellið ykkur á hana. 

Yfir í aðra hluti, ég hef verið að sitja nokkuð mikið á bókhlöðunni undafarið enda er prófatími í gangi og allt gott og blessað með það nema !  Það er fullt af krökkum úr menntaskóla sem eru þarna líka og taka mikið af borðum frá nemum við háskólann og eigi er það gaman að þurfa að vera leita sér af borði alltaf.  En það virðist líka vera kominn þreyta í bókhlöðu-staffið á menntskælingum því nú er þeim vísað ótt og títt í burtu af borðum sem frátekinn eru fyrir okkur mikills metnu háskólanema.  Ég geri mér alveg grein fyrir því að það er ekki langt síðan að ég var í fjölbraut og er ég ekki að setja almennt út á það fólk.  Heldur er þetta bara svona ákveðið lið sem eru máski busar og svona sem þurfa að vera blaðra í sífellu saman þegar maður er að reyna lesa !  Þetta er frekar pirrandi og hef ég heyrt að ég sé ekki einn um það að vera pirraður.  En ég nenni ekki að eyða of mikilli orku í að vera nöldra gegn framhaldskólanemum og látum við staðar numið í þessari færslu.
05. maí 2006 klukkan 07:02
Runólfur Óttar Kristjánsson
3 athugasemdir
02maí

Próf og vesen.... og já ég blogga ?

Ég er að skjóta inn núna fyrstu formlegu færslunni minni, en þetta er bara svona prufun hvort ég eigi eftir að nenna þessu en já kemur bara í ljós.

  Ég sit hér uppí Odda sem er hús félagsvísindadeildar og er að grúska í námsbækur og glósur því það er jú víst próf á morgun.  Verð að viðurkenna það að ég er búinn að vera full rólegur í tíðinni fyrir þetta próf þó svo ég máski eigi ekkert sérstaklega efni á því.  Ég er svona eiginlega að vona að þetta verði úr því sjitti sem ég kann mest í.  Verð nú líka að viðurkenna það að þessi áfangi er nokkuð skemtilegur þó svo ég er ekki sá duglegasti en hann heitir "Ofbeldi og Vanræksla á börnum".  Nafnið segir sig jú svoldið sjálft en ef þið skiljið ekki þá skal ég taka svona extreme dæmi úr einni bókinni sem ég er með.  "Móðir nokkur í USA átti 5ára dóttur. Móðirinn lét litlu stelpuna sína éta sinn eigin saur, neitaði að baða hana, lamdi hana og etc. (Mun meira en bara þetta)  En nágranninn hafði oft heyrt í litlu stelpunni um að öskra á mömmu sína um að "gerðu það hættu mamma".  Nágranninn vissi nú ekki umfang  þess sem gékk á en frétti það daginn sem litla stelpan endaði líf sitt þegar hún var nokkurn veginn að niðurlútum kominn.  Þá hafði móðirinn tekið enn eitt kastið á hana og fleygði henni utan í vegg og hausinn skall harkalega í og já......   Þegar stelpan var svo krufinn kom í ljós að hún var m.a. handleggsbrotinn og brákuð á nokkrum stöðum.  Það má máski velta fyrir sér afhverju nágranninn hafi ekki hringt á lögregluna eða einhvern en það fylgdi nú ekki sögunni.....   

 En svona ástæðan afhverju ég ákvað að byrja blogga er bara ??  Bara svona allt í einu hugdetta þegar ég sá nýja bloggið hennar Helenu að þetta væri mikklu flottara heldur en blogcentral, fólk.is, minnsirkus eða mblog eða fjöldinn af öllu rusli sem ég hef séð.  Þetta er samt ekkert diss til ykkar sem eru með blogg á þessum stöðum enda les ég nú alveg sum blogg þegar ég nenni.  Í rauninni skoða ég mjög sjaldan blogg og þeir vinir mínir og góðkunningjar sem eru með blogg ég veit eflaust ekki af ykkur nema jú Jonfri, Helena, Rb, Elís og jú Gummz bró.  Þannig þið sem viljið að ég setji einhvern svona link bara let me know því ég er ekki beint með á hreinu hvar þið eruð í kerfinu.

 Ég held að ég láti þetta duga sem fyrstu færslu og hún var líka alveg merkilega löng og hefði ég lent í því að þetta strokaðist út eins og hef heyrt frá sumum eftir langar færslur þá hefði ég bara hætt þessu.

Peace out.....

Bóbó
02. maí 2006 klukkan 02:01
Runólfur Óttar Kristjánsson
7 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing